ÍSÍ stendur á næstunni fyrir hvatningar- og átaksverkefninu Lífshlaupið en markmiðið með verkefninu er að létta lund og auka líkamlegt og andlegt heilbrigði á vinnustöðum landsins. Á vefnum lifshlaupid.is er allar nánari upplýsingar að finna.
Uppfærðar leiðbeiningar um viðbrögð við áreitni og einelti
Leiðbeiningar um viðbrögð við áreitni og einelti á vinnustöðum Akureyrarbæjar, hafa nú verið uppfærðar og er starfsfólk vinsamlegast beðið um að kynna sér þær. Leiðbeiningarnar má nálgast hérna.
Samþykkt fyrir kjarasamningarnefnd samþykkt af bæjarstjórn
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 20. janúar samþykkt fyrir kjarasamninganefnd. Samkvæmt samþykktinni fær nefndin nokkur ný verkefni. M.a. að setja reglur um úthlutun TV-eininga, þróa verklagsreglur um yfirvinnu og hafa eftirlit með reglum um kjör embættismanna og taka ásamt bæjarstjóra ákvörðun um kjör þeirra. Samþykktina má finna hér.
Styrktarsjóðir stéttarfélaganna taka við hlutverki Fjölskyldu- og styrktarsjóðs
Þann 1. janúar 2009 tóku styrktarsjóðir stéttarfélaganna við umsjón og afgreiðslu styrkja vegna fæðingarorlofs af Fjölskyldu- og styrktarsjóði. Á heimasíðum stéttarfélaganna má finna frekari upplýsingar.
Síðastliðinn föstudag var gengið frá nýrri skipulagsskrá fyrir Endurhæfingarsjóð, þar sem samtök launamanna og atvinnurekendur hjá hinu opinbera gerðust aðilar að sjóðnum. Við þetta tækifæri var nafni sjóðsins breytt til að endurspegla betur starfsemi hans og heitir hann nú Starfsendurhæfingarsjóður.
Fræðslusetrið Starfsmennt sinnir víðtækri þjónustu á sviði endur- og símenntunarmála fyrir opinberar stofnanir og starfsmenn þeirra. Öll námskeið sem eru í boði hjá Starfsmennt eru félagsmönnum KJALAR að kostnaðarlausu. Meðal annars er boðið upp á tölvunámskeið í fjarnámi og á næstunni verður boðið upp á námskeiðin Mannauðsstjórnun og Rekspölur 2. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Starfsmenntar - www.smennt.is.
Heimilisbókhald á nýju ári - í hvað fara peningarnir?
Á nýju ári er tilvalið að taka til í fjármálunum og besta leiðin til þess er að halda heimilisbókhald. Félagsmenn stéttarfélaganna Kjalar og Einingar Iðju geta fengið aðgang að rafrænu hemilisbókhaldi Neytendasamtakanna þeim að kostnaðarlausu.
Fyrsta tölublað ársins 2009 af Innanbæjarkrónikunni er komið út. Meðal efnis er áramótaávarp frá Sigrúnu Björk Jakobsdóttur bæjarstjóra, upplýsingar um nýja kjarasamninga og umfjöllun um Plastiðjuna Bjarg-Iðjulund. Föstu liðirnir Gamla myndin, Hvað ertu að gera? og Matarhlé eru auk þess á sínum stað.
Starfsmannaþjónustan sendir starfsfólki Akureyrarbæjar og fjölskyldum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár og þakkar ánægjulegt samstarf á liðnu ári.
Námskrá Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar er komin út fyrir vorið 2009. Mörg spennandi námskeið eru í boði og er starfsfólk hvatt til að nýta sér styrkjamöguleika hjá stéttarfélögum sínum og starfsmenntasjóðum til að sækja námskeið á komandi vori. Námskránna má nálgast hérna og hægt er að skrá sig á námskeið á heimasíðu SÍMEY.