Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með að nýju, skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að endurskoðun deiliskipulags Spítalavegar, samþykkta í bæjarstjórn þann 19. maí 2009.
Skipulagssvæðið nær til Spítalavegar og Steinatraðar. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir 9 nýjum lóðum fyrir einbýlishús, breytingum á lóðarstærðum og byggingarreitum á þegar byggðum lóðum. Einstefnuakstur verður niður Spítalaveg frá Steinatröð.
Tillöguuppdráttur mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 20. maí - 1. júlí 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Spítalavegur - deiliskipulagsuppdráttur
Spítalavegur - skýringaruppdráttur A
Spítalavegur - skýringaruppdráttur B, snið
Spítalavegur - skýringaruppdráttur C, snið
Spítalavegur - deiliskipulag frá 1990 sem fellt er úr gildi
Spítalavegur - greinargerð
Spítalavegur - húsakönnun
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 1. júlí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
20. maí 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar