Yfirlit frétta

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Kynningarmyndbönd  um grunnskólakerfið á fimm tungumálum

Kynningarmyndbönd um grunnskólakerfið á fimm tungumálum

Gert hefur verið kynningarmyndband um grunnskólakerfið á Akureyri og það textað á fjórum tungumálum auk íslensku, það er á ensku, pólsku, spænsku og rússnesku.
Lesa fréttina Kynningarmyndbönd um grunnskólakerfið á fimm tungumálum
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Jákvætt skref í fjármögnun á málaflokki fatlaðra

Ríki og sveitarfélög hafa gert með sér samkomulag um að aukið fé renni til málaflokks fatlaðra sem hefur um langt árabil verið mjög vanfjármagnaður af ríksins hálfu en það hefur bitnað illa á rekstri stærstu sveitarfélaga landsins. Samkomulagið felur í sér að útsvar verður hækkað um 0,22% en tekjuskattur lækkaður um samsvarandi hlutfall. Þessi breyting mun því ekki hafa nein áhrif á hinn almenna skattgreiðanda því skatthlutfallið, sem samanstendur af útsvari og tekjuskatti, verður hið sama eftir sem áður. Hins vegar gerir þetta ríkinu kleift að láta meiri fjármuni renna til reksturs á málaflokki fatlaðra í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Lesa fréttina Jákvætt skref í fjármögnun á málaflokki fatlaðra
Strætó á ferð um miðbæ Akureyrar. Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Akstur Strætisvagna Akureyrar um jól og áramót

Strætisvagnar Akureyrar aka ekki yfir bláhátíðarnar en verða á ferðinni sem hér segir:
Lesa fréttina Akstur Strætisvagna Akureyrar um jól og áramót
Svona var staðan í Hlíðarfjalli fyrir stundu. Mynd: Hólmfríður Sara Friðjónsdóttir.

Mikil eftirvænting vegna opnunar í Hlíðarfjalli og horfurnar góðar

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað kl. 16 í dag og verður opið til kl. 19. Opið verður á laugardag og sunnudag frá kl. 10-16.
Lesa fréttina Mikil eftirvænting vegna opnunar í Hlíðarfjalli og horfurnar góðar
Hluti þeirrar leiðar sem leið 6 ekur.

Upplýsingar frá SVA um leiðir 5 og 6

Leið 6 hjá Strætisvögnum Akureyrar ekur nú hina hefðbundnu leið sína samkvæmt leiðabók um Hagahverfið og fell alla leið suður Kjarnagötu í stað þess að fara Kristjánshaga að hluta.
Lesa fréttina Upplýsingar frá SVA um leiðir 5 og 6
Fundur í bæjarstjórn 20. desember

Fundur í bæjarstjórn 20. desember

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 20. desember nk. kl. 16.
Lesa fréttina Fundur í bæjarstjórn 20. desember
Edelweiss Air flýgur til Akureyrar frá Zurich

Edelweiss Air flýgur til Akureyrar frá Zurich

Eitt fremsta flugfélag Sviss, Edelweiss Air, mun hefja áætlunarflug til Akureyrar frá Zurich næsta sumar. Flogið verður á föstudögskvöldum til Akureyrar og svo strax til baka til Zurich í næturflugi.
Lesa fréttina Edelweiss Air flýgur til Akureyrar frá Zurich
Myndir: Laimonas Rimkus

Háborðið í Hrísey er tilbúið

Lokið er framkvæmdum við hið svokallaða Háborð í Hrísey en það er vinsæll áfanga- og áningarstaður þeirra sem fara í gönguferðir um eyjuna. Það er á hæð með vítt útsýni til allra átta. Þar liggja saman þrjár af fjórum merktum gönguleiðum um eyjuna og því þykir gott að hvílast þar, snæða nestisbita og skyggnast til allra átta. Auðvelt er að komast að Háborðinu nema í miklum snjóþyngslum.
Lesa fréttina Háborðið í Hrísey er tilbúið
Síðuskóli

Skipulagsbreytingar á lóð Síðuskóla - Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti þann 6.desember sl. að gera óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 fyrir lóð Síðuskóla skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lesa fréttina Skipulagsbreytingar á lóð Síðuskóla - Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030
Hvannavellir - deiliskipulagsuppdráttur

Hvannavellir 10-14 - Tillaga að nýju deiliskipulagi

Tillaga að nýju deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hvannavelli 10-14.
Lesa fréttina Hvannavellir 10-14 - Tillaga að nýju deiliskipulagi
Snjóbyssurnar eru látnar ganga á fullum dampi nótt sem nýtan dag um þessar mundir.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað á föstudag

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað föstudaginn 16. desember og verður opið frá kl. 16-19.
Lesa fréttina Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað á föstudag