Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað föstudaginn 16. desember og verður opið frá kl. 16-19.
Snjóbyssurnar hafa gengið af fullum krafti síðustu sólarhringa eða eftir að tók að frysta almennilega og nú er talsverð snjókoma í kortunum. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, fagnar því að geta opnað á föstudaginn en segir að það mætti að sönnu vera meiri snjór í brekkunum.
"Við erum búin að framleiða góðan grunn með því að standa sólarhringsvaktir undanfarið og það verður enginn svikinn af því að mæta í Fjallið á föstudaginn. Hins vegar verður að segjast sem er að okkur vantar náttúrulegan snjó af himnum ofan til að breiða mjúka fönn yfir þennan grunn sem við höfum búið til og ég sé ekki betur en að það fari að snjóa hressilega um eða upp úr næstu helgi. Veislan er að hefjast," segir Brynjar Helgi.