Yfirlit frétta

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Leik- og grunnskólar eru opnir í dag

Leik- og grunnskólar eru opnir í dag

Leik- og grunnskólar á Akureyri verða opnir í dag en kennsla fellur niður í Hlíðarskóla norðan bæjarins.
Lesa fréttina Leik- og grunnskólar eru opnir í dag
Röskun á ferliþjónustu í dag og Gámasvæðið lokað

Röskun á ferliþjónustu í dag og Gámasvæðið lokað

Allar ferðir ferliþjónustu Akureyrarbæjar með hjólastóla falla niður í dag þar sem gert er ráð fyrir hávaðaroki í bænum um og upp úr hádegi.
Lesa fréttina Röskun á ferliþjónustu í dag og Gámasvæðið lokað
Rauð viðvörun í flestum landshlutum á morgun.

Gert ráð fyrir að leik- og grunnskólar verði opnir á morgun

Þrátt fyrir afleita veðurspá er ennþá gert ráð fyrir að leik- og grunnskólar Akureyrarbæjar verði opnir á morgun, fyrir utan að tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður skólastaf í Hlíðarskóla. Sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs verður í sambandi við lögreglu og kemur tilkynningu til útvarpsstöðva RÚV og Bylgjunnar ef kennsla fellur niður og er þá gert ráð fyrir að fyrsta tilkynning þar að lútandi verði flutt í fréttum kl. 7 að morgni.
Lesa fréttina Gert ráð fyrir að leik- og grunnskólar verði opnir á morgun
Dr. Sigrún Gunnarsdóttir ræðir verkefnið við hluta hópsins.

Hvernig má bæta vinnustaðamenningu í skólum?

Um þessar mundir taka Brekkuskóli og Leikskólinn Klappir þátt í samstarfsverkefni sem miðar að því að bæta vinnustaðamenningu og auka vellíðan í skólastarfi. Verkefnið byggir á niðurstöðum könnunar á stöðu fólks á íslenskum vinnumarkaði sem gerð var fyrir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Vinnueftirlitið í lok árs 2022. Niðurstöðurnar gáfu tilefni til þess að gefa aðstæðum starfsfólks í leik- og grunnskólum meiri gaum með hliðsjón af vellíðan þess í starfi.
Lesa fréttina Hvernig má bæta vinnustaðamenningu í skólum?
Er barnið þitt að byrja í 1. bekk?

Innritun í 1. bekk fer fram í febrúar

Í febrúar fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar haustið 2025.
Lesa fréttina Innritun í 1. bekk fer fram í febrúar
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Álagningu fasteignagjalda lokið hjá Akureyrarbæ

Álagningu fasteignagjalda er lokið hjá Akureyrarbæ og eru álagningarseðlar aðgengilegir fasteignaeigendum í þjónustugátt sveitarfélagsins og á island.is.
Lesa fréttina Álagningu fasteignagjalda lokið hjá Akureyrarbæ
Dagskrá Listasafnsins á Akureyri 2025 kynnt

Dagskrá Listasafnsins á Akureyri 2025 kynnt

Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri í gær var dagskrá ársins 2025, ný árbók og komandi starfsár kynnt. Einnig var formlega tilkynnt um útgáfu sérstakrar bókar um sýningaröðina Sköpun bernskunnar, þar sem skólabörn og starfandi listafólk leiða árlega saman hesta sína í Listasafninu. Árbók safnsins er nú öllum aðgengileg og gjaldfrjáls í anddyri safnsins auk valdra staða á Akureyri.
Lesa fréttina Dagskrá Listasafnsins á Akureyri 2025 kynnt
Fundur í bæjarstjórn 4. febrúar

Fundur í bæjarstjórn 4. febrúar

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 4. febrúar næstkomandi kl. 16.
Lesa fréttina Fundur í bæjarstjórn 4. febrúar
Eftir frost síðustu daga eru breytingar fram undan.

Mikilvægt að hreinsa niðurföll við heimili og vinnustaði

Veðurspár gera ráð fyrir lægðagangi á næstu dögum og er búist við asahláku víða um land.
Lesa fréttina Mikilvægt að hreinsa niðurföll við heimili og vinnustaði
Ótal hugmyndir reifaðar á Stórþingi ungmenna í Hofi

Ótal hugmyndir reifaðar á Stórþingi ungmenna í Hofi

Fjörmiklar umræður ómuðu um salinn Hamraborg í Hofi í morgun þegar þar var haldið Stórþing ungmenna á Akureyri. Unga fólkið ræddi allt á milli himins og jarðar sem snertir á einn eða annan hátt daglegt líf þess í bænum. Ótal hugmyndir svifu um salinn hvort heldur sem rætt var um tómstundastarf ungmenna, skólastarfið, andlega líðan, orðræðu á samfélagsmiðlum eða hvaðeina annað.
Lesa fréttina Ótal hugmyndir reifaðar á Stórþingi ungmenna í Hofi
Mynd frá hrisey.is

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra í sumar

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 18.-21. júní 2025.
Lesa fréttina Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra í sumar