Mikilvægt að hreinsa niðurföll við heimili og vinnustaði

Eftir frost síðustu daga eru breytingar fram undan.
Eftir frost síðustu daga eru breytingar fram undan.
Veðurspár gera ráð fyrir lægðagangi á næstu dögum og er búist við asahláku víða um land. Þetta getur haft í för með sér mikið álag á fráveitukerfi og eru bæjarbúar hvattir til að hreinsa niðurföll við heimili sín og vinnustaði til að forðast vatnstjón.
 
Auk þess má búast við hálku á vegum og því er mikilvægt að ökumenn sýni sérstaka aðgát og aki varlega.
 
Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar hafa þegar hafist handa við að hreinsa frá niðurföllum í bænum og verða viðbúnir að bregðast við með hálkuvörn ef aðstæður krefjast.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan