Yfirlit frétta

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Leikskólinn Klappir séður úr lofti. Mynd: Bjarki Freyr Brynjólfsson.

Kynningarfundir um leikskólamál / Introductory meeting about Preschools in Akureyri

Kynningarfundir um gjaldfrjálsan leikskóla frá kl. 8-14 og tekjutengingu leikskólagjalda verða haldnir þriðjudaginn 7. nóvember á Teams. / Introductory meetings about free preschools from 8 am to 2 pm and the income connection of preschool fees will be held on Tuesday, November 7 on Teams.
Lesa fréttina Kynningarfundir um leikskólamál / Introductory meeting about Preschools in Akureyri
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Standa vörð um barnafjölskyldur og tekjulægri hópa

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2024 var lögð fram í bæjarstjórn þriðjudaginn 31. október. Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs, kynnti áætlunina og sagði meðal annars að sveitarfélagið stæði frammi fyrir miklum áskorunum þar sem umtalsverð óvissa ríkti í efnahagsmálum landsins og ástandið í heimsmálunum flækti einnig myndina. Megináhersla væri lögð á að standa vörð um hagsmuni barnafjölskyldna, tekjulægri hópa og eldri borgara, ásamt því að leggja áherslu á lýðheilsu bæjarbúa með bættri aðstöðu og metnaðarfullri lýðheilsustefnu.
Lesa fréttina Standa vörð um barnafjölskyldur og tekjulægri hópa
Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Fyrsta flug easyJet til Akureyrar var í gær

Fyrsta flug breska lággjaldaflugfélagsins easyJet var til Akureyrar í gær en félagið mun fljúga tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum, milli Gatwickflugvallar í Lundúnum og Akureyrar út mars 2024.
Lesa fréttina Fyrsta flug easyJet til Akureyrar var í gær
Skrudduskrúðganga Egils Andrasonar, sumarlistamanns Akureyrarbæjar 2023.

Opið fyrir umsóknir um styrki í Menningarsjóð Akureyrarbæjar 2024

Akureyrarbær auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð fyrir árið 2024. Umsóknarfrestur allra umsókna er til og með 22. nóvember 2023.
Lesa fréttina Opið fyrir umsóknir um styrki í Menningarsjóð Akureyrarbæjar 2024
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Nýjum kafla bætt við umhverfis- og loftlagsstefnu Akureyrarbæjar

Á fundi bæjarstjórnar 17. október sl. var samþykkt að bæta nýjum kafla við umhverfis- og loftlagsstefnu Akureyrarbæjar fyrir árin 2022-2030. Kaflinn ber yfirskriftina "Umgengni og stjórnsýsla" og fjallar um mikilvægi þess að tryggja góða ásýnd bæjarins og halda bæjarlandi, lóðum og athafnasvæðum snyrtilegum. Lögð er áhersla á að sveitarfélagið sýni gott fordæmi í umgengni við umhverfið og geri sambærilegar kröfur til verktaka og framkvæmdaaðila.
Lesa fréttina Nýjum kafla bætt við umhverfis- og loftlagsstefnu Akureyrarbæjar
Á brún hengiflugsins?

Á brún hengiflugsins?

Laugardaginn 4. nóvember kl. 14 verður haldið í Menningarhúsinu Hofi málþing á vegum Akureyrarbæjar og AkureyrarAkademíunnar um stefnu Akureyrarbæjar í umhverfis- og loftslagsmálum. Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um útblástur gróðurhúsalofttegunda, breyttar ferðavenjur, aukna nýtingu á innlendri orku, minni sóun og meiri endurvinnslu.
Lesa fréttina Á brún hengiflugsins?
Fundur í bæjarstjórn 31. október

Fundur í bæjarstjórn 31. október

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 31. október næstkomandi kl. 16.
Lesa fréttina Fundur í bæjarstjórn 31. október
Viltu leggja þitt af mörkum í þágu farsældar barna?

Viltu leggja þitt af mörkum í þágu farsældar barna?

Stjórn SAMTAKA, foreldrafélaganna á Akureyri, og Heimili og skóli bjóða foreldrum og forsjáraðilum barna og ungmenna að taka þátt í vinnustofu við gerð Farsældarsáttmála. Á vinnustofunni gefst foreldrum kostur á að leggja sitt af mörkum til að stuðla að farsæld barna í sveitarfélaginu og efla samstöðu þeirra sem að málum barna og ungmenna koma.
Lesa fréttina Viltu leggja þitt af mörkum í þágu farsældar barna?
Töfrateppið í nýjan búning

Töfrateppið í nýjan búning

Starfsmenn skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli hafa lokið við að setja saman 63ja metra yfirbyggingu úr gegnsæjum einingum á hið svokallaða Töfrateppi. Yfirbyggingin myndar eins konar göng utan um færibandið og skýlir þeim sem það nota fyrir veðri og vindum.
Lesa fréttina Töfrateppið í nýjan búning
Alþjóðleg kvikmyndahátíð á Akureyri 26.-29. október

Alþjóðleg kvikmyndahátíð á Akureyri 26.-29. október

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin, Northern Lights - Fantastic Film Festival, er nú haldin í fyrsta skipti á Akureyri. Hátíðin verður dagana 26.-29. október og sýndar verða 38 alþjóðlegar stuttmyndir í Ketilhúsinu og Hofi. Þemað er m.a. hrollvekja, enda myndirnar sýndar í kringum hrekkjavökuhátíðina, en einnig vísindaskáldskapur, fantasía ævintýri og hreyfimyndir
Lesa fréttina Alþjóðleg kvikmyndahátíð á Akureyri 26.-29. október
Elías Rúni ásamt þátttakendum. Ljósmynd: Almar Alfreðsson.

Myndasögur í Listasafninu

Um síðustu helgi fór fram fyrsta listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - Listvinnustofur barna árið 2023 í Listasafninu á Akureyri. Þá bauð Elías Rúni, myndasöguhöfundur, myndlýsir og grafískur hönnuður, börnum í 3.-6. bekk að gera tilraunir með myndasöguformið og kynnast ólíkum leiðum til að segja sögur í myndum með áherslu á skapandi form og frásögn. Innblástur var sóttur í hversdagsleikann og sagna leitað í minningum og því sem er efst á baugi í samfélaginu.
Lesa fréttina Myndasögur í Listasafninu