Fundur í bæjarstjórn 31. október

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 31. október næstkomandi kl. 16.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.

Á dagskránni er fyrri umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar. Einnig verður meðal annars tekin fyrir gjaldskrá leikskóla fyrir 2024, upplýsinga- og vefstefna bæjarins og rætt um landbúnaðarmál og stöðu bænda. 

Hér er hægt að skoða dagskrá fundarins.

Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan