Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær voru kynntar og samþykktar samhljóða tillögur starfshóps sem hafði það verkefni að útbúa viðbragðsáætlun vegna ofbeldis, áreitis og/eða kynferðislegrar áreitni sem kjörnir fulltrúar kunna að verða fyrir í störfum sínum fyrir bæinn.
Ávarp á ráðstefnunni Conference on Development of Regions and Organizations – Challenge for Economics and management Science
Ávarp á ráðstefnunni Conference on Development of Regions and Organizations – Challenge for Economics and management Science sem haldin var í Háskólanum á Akureyri á vegum samgöngu-og sveitarstjórnarráðuneytisins, Byggðastofnunar og Nordregio.
Mánudaginn 16. september var handverksmiðstöðin Punkturinn í Rósenborg opnuð aftur eftir sumarlokun. Þeir sem kunna að nýta sér aðstöðuna á Punktinum mættu þá með bros á vör og kollinn troðfullan af hugmyndum. Skorað er á fleiri að kynna sér það sem handverksmiðstöðin hefur upp á að bjóða. Allir eru velkomnir.
Benedikt Árni Birkisson fæddist 20. júlí sl. á Akureyri og er samkvæmt íbúaskráningu 19.000. íbúi sveitarfélagsins. Benedikt litli kom á fund Ásthildar Sturludóttur bæjarstjóra og Höllu Bjarkar Reynisdóttur forseta bæjarstjórnar í morgun með foreldrum sínum og systur sinni Aþenu Sif sem er á öðru aldursári.
Í dag, á Degi íslenskrar náttúru mánudaginn 16. september, undirritaði Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri loftslagsyfirlýsingu Festu og Akureyrarbæjar og var fyrirtækjum og stofnunum í bænum boðið að gera slíkt hið sama.