Stórholt - Lyngholt

Stórholt - Lyngholt
Stórholt - Lyngholt

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulaginu, Stórholt - Langholt skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2012.

Svæðið sem deiliskipulagið nær til afmarkast af miðeyju Hörgárbrautar í suðri, af Undirhlíð í vestri og af Krossanesbraut í norðri. Í austri liggja skipulagsmörkin að Glerá og Óseyri. Skipulagssvæðið er alls um 7,2 ha að flatarmáli.

Um er að ræða deiliskipulag í fullbyggðu hverfi en byggingarreitir og nýtingarhlutfall er nú skilgreint fyrir allar lóðir innan skipulagssvæðisins. Einnig er gert ráð fyrir öðrum minniháttar framkvæmdum s.s. lagningu göngustíga auk þess sem nýjir byggingarreitir eru skilgreindir á þremur lóðum. 

Skipulagsuppdráttur, greinargerð og húsakönnun mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 13. júní  til 26. júlí 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Stórholt - Lyngholt - Skipulagsuppdráttur

Stórholt - Lyngholt - Greinargerð

Stórholt - Lyngholt - Húsakönnun

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 þann 26. júlí 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson verkefnastjóri skipulagsmála.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan