Öldungaráð

44. fundur 19. febrúar 2025 kl. 13:00 - 14:30 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
  • Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi hsn
Starfsmenn
  • Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður tómstundamála
Dagskrá
Hjálmar Pálsson L-lista tilkynnti forföll og náði ekki í varamann sinn fyrir fund.

1.Staða öldrunarheimilisins

Málsnúmer 2025020718Vakta málsnúmer

Þóra Sif Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Heilsuverndar hjúkrunarheimila sat fundinn undir þessum lið og sagði frá stöðu mála.
Öldungaráð þakkar Þóru fyrir kynninguna. Öldungaráð ítrekar enn og aftur áhyggjur sínar af stöðu mála varðandi biðlista og harmar seinagang í uppbyggingu hjúkrunarrýma á Akureyri.

2.Starfsáætlun öldungaráðs 2025

Málsnúmer 2025010727Vakta málsnúmer

Farið yfir starfsáætlun öldungaráðs og lagðar fram tillögur að lítilsháttar breytingum.
Framkomnar breytingar samþykktar samhljóða.

3.Starfsreglur öldungaráðs

Málsnúmer 2020030048Vakta málsnúmer

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Strætó - jöfnunarstoppistöð á nýjum stað

Málsnúmer 2022120685Vakta málsnúmer

Hallgrímur Gíslason fulltrúi EBAK lagði fram til samþykktar umsögn um nýtt leiðakerfi strætó og flutning á jöfnunarstöð.
Umsögn samþykkt og er vísað áfram til umhverfis og mannvirkjaráðs.

Fundi slitið - kl. 14:30.