Yfirlit frétta

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Holtahverfi

Hönnun gatna og stíga í Holtahverfi á Akureyri

Akureyrarbær og Norðurorka bjóða út hönnun gatna og stíga í Holtahverfi á Akureyri. Verkið felst í því að hanna götur í Holtahverfi Norður, sem er þéttingarreitur í Holtahverfi. Í verkhönnun felst fullhönnun gatna og stíga með veitukerfum, þ.e.a.s. götulýsingu, fráveitu auk þess að taka við hönnunargögnum vegna vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu, símalagna og ljósleiðara og fella inn í hönnunarteikningar.
Lesa fréttina Hönnun gatna og stíga í Holtahverfi á Akureyri
Samþykktar skipulagstillögur

Samþykktar skipulagstillögur

Breyting á deiliskipulagi spennistöðvar við Þingvallastræti.
Lesa fréttina Samþykktar skipulagstillögur
Sigurhæðir til leigu

Sigurhæðir til leigu

Frestur til að skila inn hugmyndum og tilboðum í leigu á Sigurhæðum rennur út á föstudaginn kemur.
Lesa fréttina Sigurhæðir til leigu
Starfsárið á Listasafninu

Starfsárið á Listasafninu

Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri á föstudaginn var komandi starfsár, sýningaskrá ársins 2021 og hlaðvarp Listasafnsins kynnt. Einnig var farið yfir starfsemi safnsins á ársgrundvelli og hlutverk þess á tímum Covid-19 faraldursins.
Lesa fréttina Starfsárið á Listasafninu
Álfheiður og Ásthildur í afmælisboðinu. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Álfheiður Jónsdóttir 100 ára

Álfheiður Jónsdóttir er 100 ára í dag. Af því tilefni heimsótti Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, hana og færði henni blómvönd frá bæjarstjórn Akureyrar.
Lesa fréttina Álfheiður Jónsdóttir 100 ára
Mynd: Þorgeir Baldursson.

Fleiri miðar til sölu í Hlíðarfjall

Í morgun var tilkynnt að nýjar reglur hafi tekið gildi um skíðasvæði landsins í Covid-19 faraldri. Helstu breytingar eru þær að nú mega skíðasvæðin taka á móti 50% af hámarksgetu svæðanna og einnig má opna veitingasölu. Víst er að margir munu taka þessu fagnandi enda liggur straumur landsmanna norður í vetrarfríi grunnskólanna og fyrr í vikunni var þá þegar orðið uppselt í Hlíðarfjall þessa helgi og fram í næstu viku. Nú verður hægara um vik að fara á heimasíðu Hlíðarfjalls og kaupa miða í Fjallið.
Lesa fréttina Fleiri miðar til sölu í Hlíðarfjall
Mynd frá Atlantshafsbandalaginu sem tekin var Norðmenn annaðist loftrýmisgæslu hér á landi í fyrra.

Aðflugsæfingar á mánudag

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar norska flughersins. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum í nokkur skipti á tímabilinu 22. febrúar til 5. mars, ef veður leyfir. Mánudaginn 22. febrúar gera Norðmenn ráð fyrir aðflugsæfingu að Akureyrarflugvelli sem gæti orðið á milli kl. 10–15.
Lesa fréttina Aðflugsæfingar á mánudag
Samræmd þjónusta við flóttafólk

Samræmd þjónusta við flóttafólk

Bæjarráð samþykkti nýverið þátttöku Akureyrarbæjar í reynsluverkefni til eins árs á vegum félagsmálaráðuneytisins um móttöku flóttafólks.
Lesa fréttina Samræmd þjónusta við flóttafólk
Siglingahúsið er farið að taka á sig mynd.

Góður gangur í framkvæmdum við siglingahöll

Framkvæmdir við nýtt og glæsilegt aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva ganga vel. Verkið er á áætlun og er stefnt að því að húsið verði tilbúið til notkunar fyrri part sumars.
Lesa fréttina Góður gangur í framkvæmdum við siglingahöll
Niðurstaða bæjarstjórnar – Deiliskipulagsbreyting Hesthúsahverfisins í Breiðholti

Niðurstaða bæjarstjórnar – Deiliskipulagsbreyting Hesthúsahverfisins í Breiðholti

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 2. febrúar 2021 samþykkt deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lesa fréttina Niðurstaða bæjarstjórnar – Deiliskipulagsbreyting Hesthúsahverfisins í Breiðholti
Samningana undirrituðu Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins á Akureyri og Ásthildur Sturl…

Nýr samningur um Minjasafn og skáldasöfn

Í dag undirrituðu bæjarstjórinn á Akureyri og formaður stjórnar Minjasafnsins á Akureyri nýja samninga til næstu þriggja ára um þjónustu Minjasafnsins og rekstur skáldasafnanna Nonnahúss og Davíðshúss.
Lesa fréttina Nýr samningur um Minjasafn og skáldasöfn