Undirhlíð - Miðholt, lóð fyrir?spennistöð - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu -lokið

Breytingin felst í að gerð er ný lóð fyrir spennistöð við Langholt á opnu svæði norðan Undirhlíðar 1.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 16. júní til 28. júlí 2011, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.

Undirhlíð - Miðholt

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 fimmtudaginn 28. júlí 2011 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

 

16. júní 2011
 Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan