Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti

Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti
Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðisins við Þórunnarstræti  skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012.

Deiliskipulagssvæðið afmarkast í suðri af Hrafnagilsstræti, í vestri af Byggðavegi, í norðri af Þingvallastræti og austri af Þórunnarstræti.

Um er að ræða stækkun á lóð og byggingarreit Þingvallastrætis 23 auk annarra minniháttar breytinga.

Skipulagsuppdráttur, greinargerð og húsakönnun mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 13. júní  til 26. júlí 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti - Skipulagsuppdráttur

Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti - Greinargerð

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 þann 26. júlí 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson verkefnastjóri skipulagsmála.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan