Krossaneshagi C-áfangi. Tillaga að deiliskipulagi.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Krossaneshaga C-áfanga. Skipulagssvæðið afmarkast af Óðinsnesi í suðri, Krossanesbraut í austri og Krossanesborgum í norðri. Lóðir nr. 1 og 2 við Ægisnes eru einnig innan skipulagsins en auk þeirra gerir deiliskipulagstillagan ráð fyrir tólf atvinnulóðum við nýja götu, Týsnes.

Tillöguuppdráttur mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 18. desember 2008 - 29. janúar 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.

Krossaneshagi C-áfangi - deiliskipulagsuppdráttur

Krossaneshagi C-áfangi - skýringaruppdráttur

Krossaneshagi C-áfangi - greinargerð

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 fimmtudaginn 29. janúar 2009 og skal athugasemdum skilað til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

18. desember 2008

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan