Deiliskipulag hafnarsvæða sunnan Glerár

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í tillögunni er gert ráð fyrir bættri aðstöðu fyrir þau fyrirtæki sem þjóna farþegaskipum og er frágangur aðkomuleiða og aðliggjandi opins svæðis endurskoðaður með það í huga.

Tillöguuppdráttur með greinargerð og skýringaruppdráttur munu liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 29. febrúar til 11. apríl 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Deiliskipulag hafnarsvæða sunnan Glerár - skipulagsuppdráttur

Deiliskipulag hafnarsvæða sunnan Glerár - skýringaruppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 þann 11. apríl 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar,

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan