Akureyrarbær á ekki beina aðkomu að kjaradeilum

Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Að gefnu tilefni vill sveitarfélagið Akureyrarbær koma því á framfæri að það á ekki, fremur en önnur sveitarfélög í landinu, beina aðkomu að kjaradeilum ríkis, sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Með samkomulagi um kjarasamningsumboð frá 9. janúar 2023 (sjá hlekk að neðan) var Sambandi íslenskra sveitarfélaga veitt fullnaðarumboð til kjarasamningagerðar fyrir hönd Akureyrarbæjar við öll stærstu stéttarfélög landsins.

Akureyrarbæ og öðrum sveitarfélögum sem undirritað hafa samkomulagið er samkvæmt umboðinu ekki heimilt að hafa afskipti af kjarasamningagerð. Sveitarfélagið skuldbindur sig til að hlíta markmiðum og stefnu sambandsins í kjaramálum og þeim kjarasamningum sem sambandið gerir fyrir þess hönd í öllum atriðum, með staðfestingu stjórnar sambandsins.

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur því fullt umboð til að annast allar kjaraviðræður, ganga frá kjarasamningum og annast útgáfu þeirra í samráði við viðkomandi stéttarfélög.

„Við erum upplýst um gang mála en þetta er alfarið í höndum samningsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. „Okkur er hreinlega ekki heimilt samkvæmt samkomulaginu að hlutast á nokkurn hátt til um þessar kjaradeilur sem leysast vonandi von bráðar.“

Samkomulag um kjarasamningsumboð.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan