Skipulags- og matslýsing, Vestursíða - Borgarbraut

Um þessar mundir er unnið að gerð deiliskipulags við Vestursíðu – Borgarbraut í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur lagt fram til kynningar skipulags- og matslýsingu á verkefninu. Þar koma m.a. fram hvaða áherslur eru ráðandi við gerð deiliskipulagsins og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu. Þá er fyrirhuguðu skipulagsferli lýst og hvernig kynningu og samráði verður háttað gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

Skipulags- og matslýsingin mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9,  1. hæð, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér gögnin og komið með ábendingar.

Borgarbraut - Vestursíða. Skipulags- og matslýsing

Þeir sem vilja koma ábendingum til skipulagsnefndar er bent á að skila þeim skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. 

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson verkefnastjóri skipulagsmála.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan