Óseyri sunnan Krossanesbrautar, tillaga að deiliskipulagi

Tillaga að deiliskipulagi
Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi skv. skipulagslögum nr. 123/2010.

Um er að ræða deiliskipulag af þegar byggðu hverfi. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðarmörkum lóða 1, 1a, 2 og 2a við Óseyri, nema í norðri þar sem skipulagsmörkin eru við Krossanesbraut. Jafnframt er fellt úr gildi deiliskipulag fyrir Óseyri 1 sem samþykkt var í bæjarstjórn 9. janúar 1996 þar sem það er innan þessa skipulags.

Óseyri sunnan Krossanesbrautar - greinargerð

Óseyri sunnan Krossanesbrautar - uppdráttur

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 9. nóvember til 22. desember 2011, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 fimmtudaginn 22. desember 2011 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (arnarb@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 9. nóvember 2011,

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan