Oddeyri ? Tillaga að deiliskipulagsbreytingu - Lokið

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagsbreytingu skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðið sem tekur breytingum afmarkast af Grundargötu í vestri, Gránufélagsgötu í norðri, Hríseyjargötu í austri og Strandgötu í suðri. Í tillöguninni eru m.a. lögð fram ný lóðamörk, nýjir byggingarreitir og nýtingahlutfall skilgreint fyrir hverja lóð.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 13. apríl til 25. maí 2011, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.

Oddeyri, tillaga að breyttu deiliskipulagi - uppdráttur og greinagerð

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 25. maí 2011 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

 

13. apríl 2011
     Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan