Nr. 961/2012 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Oddeyri, suðurhluti – Hríseyjargata 7 og 9.

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar samþykkti 31. október 2012 deiliskipulags­breytingu fyrir Oddeyri, suðurhluta sem fengið hefur málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulags­laga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að lóðamörk Hríseyjargötu 7 og 9 eru lagfærð og byggingarreitir fyrir viðbyggingar eru skilgreindir við húsið Hríseyjargötu 7. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 1. nóvember 2012,

Anna Bragadóttir,

verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 15. nóvember 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan