Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar samþykkti 31. október 2012 deiliskipulagsbreytingu fyrir Oddeyri, suðurhluta sem fengið hefur málsmeðferð skv. 2.
mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að lóðamörk Hríseyjargötu 7 og 9 eru lagfærð og byggingarreitir fyrir viðbyggingar eru skilgreindir við
húsið Hríseyjargötu 7. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún
þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 1. nóvember 2012,
Anna Bragadóttir,
verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 15. nóvember 2012