Nr. 76/2012 auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Hafnarsvæði í Krossanesi, Krossanes 4 og Krossaneshagi B áfangi. Breyting á deiliskipulögum

Hafnarsvæði í Krossanesi, Krossanes 4. Breyting á deiliskipulagi.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti þann 20. desember 2011, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæðið í Krossanesi, dags. 8. apríl 2008.

Vegna stækkunar á aflþynnuverksmiðjunni í Krossanesi 4 stækkar lóð og byggingarreitur til suðvesturs. Krossanesbraut færist einnig til um 15 metra, frá gildandi deiliskipulagi, næst gatna-mótunum við Krossanes 4. Við þessar breytingar færast skipulagsmörkin til suðurs og vesturs.

Krossaneshagi B áfangi. Breyting á deiliskipulagi.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti þann 20. desember 2011, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, deiliskipulagsbreytingu fyrir Krossaneshaga, B áfanga, dags. 3. júlí 2003.

Bæjarstjórn samþykkti 17. febrúar 2009 deiliskipulagið Krossaneshagi, C áfangi, en það nær að hluta til inn á skipulagssvæðið Krossaneshagi, B áfangi. Breytingaruppdráttur var ekki gerður þá og er sú breyting innfærð hér með.

Breyting á deiliskipulagssvæðinu „Hafnarsvæði í Krossanesi", samþykkt í bæjarstjórn 20. des-ember 2011, leiðir til þess að afmörkun deiliskipulagssvæðisins breytist með þeim hætti að hluti þess er felldur úr gildi.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 37. – 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eins og skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 16. janúar 2012,

Arnar Birgir Ólafsson verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild – Útgáfud.: 31. janúar 2012

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan