Skipulagsstofnun staðfesti þann 18. mars 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar þann 19. febrúar 2013. Niðurstaða bæjarstjórnar var auglýst 27. febrúar 2013. Breytingin felur í sér að
þéttbýlismörk ofan byggðar á Akureyri verða færð ofar þannig að meginhluti landnotkunarreita verða innan þeirra.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, hverfisverndarsvæði á Glerárdal og vatnsverndarsvæði verða utan þess.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 18. mars 2013.
Stefán Thors.
Erna Hrönn Geirsdóttir
B-deild - Útgáfud.: 5. apríl 2013