Nr. 306/2013 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, þéttbýlismörk.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 18. mars 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 19. febrúar 2013. Niðurstaða bæjarstjórnar var auglýst 27. febrúar 2013. Breytingin felur í sér að þéttbýlismörk ofan byggðar á Akureyri verða færð ofar þannig að meginhluti landnotkunarreita verða innan þeirra. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, hverfis­verndar­svæði á Glerárdal og vatnsverndarsvæði verða utan þess. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 18. mars 2013.

Stefán Thors.

Erna Hrönn Geirsdóttir

B-deild - Útgáfud.: 5. apríl 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan