Nr. 222/2013 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, Giljahverfi.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 22. febrúar 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 5. febrúar 2013. Niður­staða sveitarstjórnar var auglýst 13. febrúar 2013.
Í breytingunni felst að íbúðarsvæði í Giljahverfi og stofnanasvæði Giljaskóla eru stækkuð á kostnað óbyggðs svæðis. Umferðartenging verður við Borgarbraut á móts við Bugðusíðu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 22. febrúar 2013.

Stefán Thors.

Guðrún Halla Gunnarsdóttir.

 

B-deild - Útgáfud.: 8. mars 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan