Skipulagsstofnun staðfesti þann 22. febrúar 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar þann 5. febrúar 2013. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 13. febrúar 2013.
Í breytingunni felst að íbúðarsvæði í Giljahverfi og stofnanasvæði Giljaskóla eru stækkuð á kostnað
óbyggðs svæðis. Umferðartenging verður við Borgarbraut á móts við Bugðusíðu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 22. febrúar 2013.
Stefán Thors.
Guðrún Halla Gunnarsdóttir.
B-deild - Útgáfud.: 8. mars 2013