NR. 1052/2011 AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í AKUREYRARKAUPSTAÐ

Breyting á deiliskipulagi, Lystigarður Akureyrar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 1. nóvember 2011 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Lystigarð Akureyrar, Eyrarlandsvegi 30.
Breytingin felur í sér að byggingarmagn fyrir fyrirhugaða byggingu kaffihúss í Lysti­garðinum er aukið um 30 m². Byggingin stækkar úr 150 m² í 180 m². Einnig er breyting á texta í greinargerð í kafla 3.1.2 Kaffihús og skjólveggur er lengdur til vesturs.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan