Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. nóvember 2012 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag
fyrir Hlíðahverfi - suðurhluta. Skipulagssvæðið afmarkast í suðri af opnu svæði norðan við Glerá, í vestri af lóð
Glerárskóla, í norðri af Undirhlíð og opnu svæði norðan Áshlíðar og í austri af Hörgárbraut. Skilgreindir
eru m.a. byggingarreitir fyrir hús á svæðinu, götur og gangstígar eru endurskoðuð og tvær nýjar byggingalóðir skipulagðar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 28. nóvember 2012,
Anna Bragadóttir,
verkefnastjóri skipulagsmála
B-deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2012