Nr. 1014/2012 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulag Hlíðahverfis – suðurhluti

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. nóvember 2012 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Hlíðahverfi - suðurhluta. Skipulagssvæðið afmarkast í suðri af opnu svæði norðan við Glerá, í vestri af lóð Glerárskóla, í norðri af Undirhlíð og opnu svæði norðan Áshlíðar og í austri af Hörgár­braut. Skilgreindir eru m.a. byggingarreitir fyrir hús á svæðinu, götur og gangstígar eru endurskoðuð og tvær nýjar byggingalóðir skipulagðar. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 28. nóvember 2012,

Anna Bragadóttir,

verkefnastjóri skipulagsmála

B-deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan