Fyrir liggur tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæ Akureyrar - austurhluta.
Í henni eru margar nýstárlegar hugmyndir. Ykkur íbúum er boðið á kynningu á tillöguninni í Brekkuskóla laugardaginn 20. febrúar kl. 13:30 til 15:00.
Bæjaryfirvöld, skipulagshönnuðir frá Greame Massie Architects og aðrir ráðgjafar munu kynna skipulagstillögunina og svara fyrirspurnum.
Á fundinum verður m.a. fjalla um spurningar eins og:
· Af hverju þarf deiliskipulag af miðbænum? Er þörf á breytingum?
· Hverjar eru lykil áherslur skipulagsins?
· Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á Glerárgötu?
· Hvernig eru bílastæðamál leyst?
· Hvar og hvað er fyrirhugað að byggja?
· Af hverju síki og vatnasvæði?
· Er kostnaðurinn ekki of mikill í ljósi efnahagsástandsins?
Boðið verður upp á gönguferð um miðbæinn í lok fundar.
Kynningarbæklingur
Nánari upplýsingar fást hjá skipulagsdeild í síma 460-1000 og á vef Akureyrarbæjar: www.akureyri.is/midbaer