Kynningafundur á deiliskipulagi miðbæjarins - Laugardaginn 20. febrúar

Fyrir liggur tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæ Akureyrar - austurhluta.

Í henni eru margar nýstárlegar hugmyndir. Ykkur íbúum er boðið á kynningu á tillöguninni í Brekkuskóla laugardaginn 20. febrúar kl. 13:30 til 15:00.

Bæjaryfirvöld, skipulagshönnuðir frá Greame Massie Architects og aðrir ráðgjafar munu kynna skipulagstillögunina og svara fyrirspurnum.

 

Á fundinum verður m.a. fjalla um spurningar eins og:

·        Af hverju þarf deiliskipulag af miðbænum? Er þörf á breytingum?

·        Hverjar eru lykil áherslur skipulagsins?

·        Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á Glerárgötu?

·        Hvernig eru bílastæðamál leyst?

·        Hvar og hvað er fyrirhugað að byggja?

·        Af hverju síki og vatnasvæði?

·        Er kostnaðurinn ekki of mikill í ljósi efnahagsástandsins?

Boðið verður upp á gönguferð um miðbæinn í lok fundar.

Kynningarbæklingur

Nánari upplýsingar fást hjá skipulagsdeild í síma 460-1000 og á vef Akureyrarbæjar: www.akureyri.is/midbaer

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan