Hér að neðan og í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar er nú til kynningar breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018
vegna Kjarna, Hamra og Götu sólarinnar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkun frístundabyggðar til vesturs á kostnað íbúaðsvæðis syðst í Naustahverfi,
að svæði fyrir frístundabyggð austan tengibrautar verði fellt út og að tjaldsvæðið að Hömrum stækki til norðurs
Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagsdeild í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 3. hæð.
Aðalskipulagsuppdráttur tillaga
10. júlí 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar