Kynning á breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar vegna Kjarna, Hamra og Götu sólarinnar

Hér að neðan og í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar er nú til kynningar breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 vegna Kjarna, Hamra og Götu sólarinnar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Tillagan gerir ráð fyrir stækkun frístundabyggðar til vesturs á kostnað íbúaðsvæðis syðst í Naustahverfi, að svæði fyrir frístundabyggð austan tengibrautar verði fellt út og að tjaldsvæðið að Hömrum stækki til norðurs

Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagsdeild í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 3. hæð.

Aðalskipulagsuppdráttur tillaga 

10. júlí 2013

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan