Klettaborg - tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi skv. skipulagslögum nr. 123/2010.

Í tillögunni er m.a. gert ráð fyrir stækkun á lóðunum Klettaborg 35 og 41, leiksvæði og tveimur nýjum hraðahindrunum. 

Klettaborg - tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 14. desember 2011 til 26. janúar 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 fimmtudaginn 26. janúar 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, og/eða í tölvupósti (arnarb@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan