Deiliskipulag fyrir athafnasvæðið við Austursíðu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. júní 2013 samþykkt að auglýsa deiliskipulag fyrir athafnasvæðið við Austursíðu skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr 123/2010.

Svæðið afmarkast af Hlíðarbraut, Austursíðu, Síðubraut og nær norður fyrir Hörgárbraut. Í skipulaginu eru m.a. skilgreindir byggingarreitir, nýtingahlutfall og svæði fyrir gáma á lóðum hverfisins.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 12. júní til 24. júlí 2013 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillöguna er hægt að nálgast hér fyrir neðan.

Austursíða athafnasvæði - greinagerð

Austursíða athafnasvæði - uppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 24. júlí 2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

12. júní 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan