Bæjarráð Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu á lóð nr. 5 við Fluguborg og 10 við Faxaborg, samþykkta í bæjarráði þann 16. júlí 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.
Breytingin felur í sér að lóðir nr. 5 við Fluguborg og nr. 10 við Faxaborg stækka til vesturs, auk þess sem nýir byggingarreitir fyrir hús og taðþró eru skilgreindir í Fluguborg 5.
Tillöguuppdráttur og greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 29. júlí til 9. september 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Breiðholt - deiliskipulagsuppdráttur
Frestur til að gera athugasemdir er til og með miðvikudeginum 9. september 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
27. júlí 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.