Nr. 863/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Naustahverfi, svæði norðan Tjarnarhóls.

Breyting á deiliskipulagi Naustahverfis, svæði norðan Tjarnarhóls. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. ágúst 2013 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi, svæði norðan Tjarnarhóls. Breytingin felur í sér stækkun íbúðarsvæðis á kostnað opins svæðis til sérstakra nota. Gert er ráð fyrir 12 nýjum lóðum fyrir íbúðarhús, samtals 36 íbúðum auk þess er 7 íbúða raðhúsi breytt í tvö fjölbýlishús með 4 íbúðum í hvoru húsi. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 17. september 2013,

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 1. október 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan