Breyting á deiliskipulagi Naustahverfis, svæði norðan Tjarnarhóls. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. ágúst
2013 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi, svæði norðan Tjarnarhóls. Breytingin
felur í sér stækkun íbúðarsvæðis á kostnað opins svæðis til sérstakra nota. Gert er ráð fyrir 12 nýjum
lóðum fyrir íbúðarhús, samtals 36 íbúðum auk þess er 7 íbúða raðhúsi breytt í tvö
fjölbýlishús með 4 íbúðum í hvoru húsi. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla
fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 17. september 2013,
Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 1. október 2013