Nýtt deiliskipulag fyrir Austursíðu - athafnasvæði. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. ágúst 2013 í
samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Austursíðu - athafnasvæði. Deiliskipulagið felur í sér
að skilgreindir eru byggingarreitir, nýtingarhlutfall og svæði fyrir gáma á lóðum hverfisins. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá
meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. september 2013,
Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 25. september 2013