Nr. 851/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Austursíða - athafnasvæði

Nýtt deiliskipulag fyrir Austursíðu - athafnasvæði. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. ágúst 2013 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Austursíðu - athafnasvæði. Deiliskipulagið felur í sér að skilgreindir eru byggingarreitir, nýtingarhlutfall og svæði fyrir gáma á lóðum hverfisins. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

 

 F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. september 2013,

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 25. september 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan