Nr. 1008/2013 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, akstursíþrótta- og skotæfingasvæði á Glerárdal.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 31. október 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 15. október 2013. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 23. október 2013. Í breytingunni felst að opið svæði til sérstakra nota (1.61.3-O) stækkar til vesturs og norðurs, úr 70 í 112,5 ha. Efri mörk svæðis verða við fjallgirðingu og norðurmörk við Hlíðarfjallsveg. Jafnframt er afmarkað 0,8 ha iðnaðarsvæði vatnsveitumannvirkja við Torfadal. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 31. október 2013.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir

Ottó Björgvin Óskarsson.

B-deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan