Skipulagsstofnun staðfesti þann 31. október 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar þann 15. október 2013. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 23. október 2013. Í breytingunni felst að opið
svæði til sérstakra nota (1.61.3-O) stækkar til vesturs og norðurs, úr 70 í 112,5 ha. Efri mörk svæðis verða við fjallgirðingu og
norðurmörk við Hlíðarfjallsveg. Jafnframt er afmarkað 0,8 ha iðnaðarsvæði vatnsveitumannvirkja við Torfadal. Málsmeðferð var
samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 31. október 2013.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir
Ottó Björgvin Óskarsson.
B-deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2013