Eyrarvegur 25 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2025040083

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 1011. fundur - 04.04.2025

Erindi dagsett 1. apríl 2025 þar sem Ingólfur Bragi Arason sækir um bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús nr. 25 við Eyrarveg.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.