Viðurkenningar skólanefndar Akureyrarbæjar

Á morgun, fimmtudag, kl. 17.00 í Hofi verður þeim nemendum, kennurum og starfsmönnum við skóla Akureyrarbæjar sem þótt hafa skarað fram úr í starfi veitt sérstök viðurkenning. Þetta er í fjórða sinn sem skólanefnd stendur fyrir samkomu sem þessari en hún er í samræmi við áherslur í skólastefnu Akureyrarbæjar. 

Óskað var eftir tilnefningum frá starfsmönnum, skólum og foreldrum um nemendur og starfsmenn eða verkefni sem talin voru hafa skarað fram úr í skólastarfi. Valnefnd sem skipuð var fulltrúum frá skólanefnd, samtökum foreldra og Miðstöðvar skólaþróunar HA fór yfir allar tilnefningar og gerði tillögu til skólanefndar sem skólanefnd samþykkti á fundi sínum þann 20. júní. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan