Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson hlutu í síðustu viku Myndlistarverðlaun ársins 2022 fyrir sýninguna Vísitasíur, sem var opnuð í Listasafninu á Akureyri 25. september 2021 og stóð til 16. janúar síðastliðinn.
Í umsögn dómnefndar kemur fram: „Sýningin er afrakstur margra ára rannsóknarverkefnisins Ísbirnir á villigötum, sem þau hafa unnið í samvinnu við sérfræðinga á sviði þjóðfræði, náttúru- og umhverfisfræði. Verkefnið snýst um að auka þekkingu á tengslum dýra, manna og umhverfis á tímum hamfarahlýnunar. Til þess er sjónum beint að hvítabjörnum á Íslandi í fortíð og nútíð. Verkin á sýningunni varpa ljósi á spurningar um náttúruvernd, skoða frásagnir af árekstrum fólks og hvítabjarna í gegnum tíðina og hvað það er sem gerist þegar þessi tvö rándýr mætast."
„Ferill þeirra er fjölbreyttur og þau hafa nýtt rannsóknaraðferðir samtímalistar til að eiga í samtali við rannsóknir á öðrum sviðum, svo sem náttúruvísindum, þjóðfræði og umhverfisfræðum. Þau líta svo á að aðferðir samtímalistar geti fært mikilvæga viðbót í samtal milli ólíkra fræðigreina og beint sjónum í nýjar og óvæntar áttir.
Bryndís og Mark nýta fjölbreyttar aðferðir við framsetningu verka sinna, þar sem samspil myndbandsverka, fundinna hluta, teikninga, ljósmynda og ýmissa gagna mótar innsetninguna í samhengi við hvern og einn sýningarstað. Innsetning þeirra í Listasafninu á Akureyri var í senn áhrifarík og fræðandi og myndaði áhugaverða heild í rými safnsins."
Sjá nánar á heimasíðu Myndlistarsjóðs.