Á árinu 2024 nýttu 3.569 manns kortið sitt á bókasafninu.
Gestir Amtsbókasafnsins voru 88.562 á árinu 2024, sem er aukning um sex þúsund gesti frá fyrra ári. Þetta kemur fram í samantekt safnsins.
„Þrátt fyrir að sumir telji að bókasöfn séu lítið notuð og lestur minnki, sjáum við þetta ekki svo svart og erum bjartsýn fyrir framtíðina. Útlán og heimsóknir hafa aukist frá 2023. Það var sérstaklega skemmtilegt að sjá að kökuformin voru lánuð 270 sinnum, enda er heimsókn á bókasafnið orðinn hefðbundinn liður í kringum veislur hjá mörgum. Það er mikil stemning að velja form fyrir afmælið,“ segir Dagný Davíðsdóttir, verkefnastjóri viðburða og kynningarmála hjá Amtsbókasafninu.

Á árinu 2024 nýttu 3.569 manns kortið sitt á bókasafninu. Útlán þeirra námu 106.483 skiptum, sem eru 370 fleiri lán en árið áður. Ef bækurnar eru staflaðar upp svipar hæðin til 47 Akureyrarkirkna eða tæplega tveggja Súlna.
Dagný segir hlutverk bókasafnsins bæði hefðbundið og í sífelldri þróun. „Við erum alltaf að bæta við óhefðbundnum útlánum og nú í janúar bættust við fjölbreyttir heilsutengdir hlutir við safnkostinn okkar. Þar má meðal annars nefna lóð, æfingateygjur, blóðþrýstingsmæla og frisbígolfsett.“