Úrgangsmál, losun á plasti og pappír

Vegna yfirstandandi breytinga á sorphirðukerfi, sem áætlað er að ljúka fyrir áramót, hafa íbúar í syðri hluta bæjarins notið þjónustu án endurgjalds frá því í vor varðandi losun á pappírs og plast tunnum.

Nú verður gert tímabundið hlé á þessari þjónustu í hverfum þar sem tunnuskipti hafa ekki enn átt sér stað. Pappírs- og plasttunnurnar verða sóttar og losaðar á næstu vikum og viðkomandi íbúar þurfa að notast við grenndargáma varðandi þessa úrgangsflokka þar til nýjar tunnur berast.

Þar sem tunnuskipti hafa farið fram er reynt að láta losun á pappír og plasti haldast í hendur við aðra hverja losun á lífrænum og blönduðum úrgangi.

Í öllum hverfum fylgir losun á lífrænum og blönduðum þessu kerfi hér:

https://www.akureyri.is/is/thjonusta/umhverfismal/sorphirda/sorphirdudagatal

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan