Uppselt í Hlíðarfjall á föstudag og laugardag

Mynd úr safni: Auðunn Níelsson.
Mynd úr safni: Auðunn Níelsson.

Uppselt er á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli í dag og á morgun, föstudag og laugardag, sem og fyrripart sunnudags. Nokkrir miðar eru lausir í seinna hólfið á sunnudag.

Vegna fjöldatakmarkana mega aðeins um 25% af hámarksfjölda vera í Hlíðarfjalli hverju sinni og hefur helgum dögum verið skipt í tvö þriggja tíma hólf, annarsvegar kl. 10-13 og hins vegar kl. 14-17. Seldir eru 600 miðar í hvort hólf en þar fyrir utan eru þeir sem eiga vetrarkort velkomnir.

Framundan eru vetrarfrí í grunnskólum landsins og ljóst að það verður eftirsótt að komast á skíði eða stunda aðra útivist í Hlíðarfjalli.

Stefnt er að því að lengja opnunartímann frá 17. febrúar og verða miðar fyrir næstu helgi og dagana þar í kring settir í sölu á allra næstu dögum.

Miðasöluvefur Hlíðarfjalls.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan