Naustaskóli. Mynd: Bjarki Brynjólfsson.
Grunnskólar Akureyrarbæjar verða settir þriðjudaginn 22. ágúst. Algengt er að nemendur 1. bekkjar séu boðaðir með foreldrum sínum í samtöl við umsjónarkennara sína í upphafi skólaárs og því sé skólasetningin sjálf eingöngu ætluð nemendum í 2.-10. bekk.
Nánari upplýsingar um skipulag og tímasetningar er að finna á heimasíðu hvers grunnskóla. Þar er einnig að finna skóladagatal skólaársins en það er gagnlegt plagg þar sem hægt er að sjá tímasetningar ýmissa viðburða í skólanum, skipulagsdaga, viðtalsdaga og frídaga.
Nú eru að hefja skólagöngu 231 barn í 1. bekk en heildarfjöldi grunnskólabarna á Akureyri er 2.561 í upphafi skólaárs 2023. Til samanburður voru nemendur 1. bekkjar 234 í fyrra og heildarfjöldi nemenda var þá 2.603.
Eins og áður útvegar Akureyrarbær nemendum ritföng og önnur námsgögn og er því allajafna eingöngu þörf á að foreldrar útvegi börnum sínum skólatösku og íþrótta- og sundfatnað.
Þeir foreldrar sem eiga börn sem eru að hefja skólagöngu í 1. bekk eru hvattir til að kynna sér bæklinginn að byrja í grunnskóla.
Einnig er hægt að skoða stutt myndband um grunnskólana á Akureyri, hvort heldur sem er á íslensku eða textað á ensku, pólsku, spænsku og rússnesku.
Grunnskólar Akureyrarbæjar hafa menntastefnu Akureyrarbæjar að leiðarljósi í öllu sínu starfi en menntastefnuna er að finna hér. Þá er einnig vert að minna á að Akureyrarbær vinnur markvisst að innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, en skv. þeim lögum eiga börn og foreldrar sem á þurfa að halda að hafa aðgang að samþættri þjónustu án hindrana. Sjá nánari upplýsingar um farsæld barna á heimasíðu Akureyrarbæjar, á síðunni Farsæld barna.